Mat á frjóvgun

Að morgni dagsins eftir eggheimtu er frjóvgun metin með smásjárskoðun. Við eðlilega frjóvgun sjást tveir forkjarnar (pronuclei) inni í egginu. Annar forkjarninn inniheldur erfðaefni frá egginu og hinn erfðaefni frá sáðfrumunni.

Ef enginn forkjarni sést hefur frjóvgun ekki átt sér stað. Stundum sjást fleiri en tveir forkjarnar, sem bendir til óeðlilegrar frjóvgunar. Slík egg eru ekki notuð til áframhaldandi ræktunar eða meðferðar.

Mat á fjölda og útliti forkjarna er mikilvægt skref í því að velja þau egg sem hafa frjóvgast eðlilega og hafa bestu forsendur til að þroskast áfram í fósturvísa.

Efri mynd: Eðlilega frjóvgað egg með tvo forkjarna. Neðri mynd: Ófrjóvgað egg þar sem engir forkjarnar sjást.